Pipar\TBWA
Auglýsingastofa
Guðrúnartún 8
105 Reykjavík
Sími 510 9000
pipar@pipar-tbwa.is
Fylgdu okkur
Langþráður draumur Te & Kaffi varð að veruleika þegar 6 bragðtegundir af ilmandi tei í grisjum voru settar í sölu. Telaufin eru óbrotin í grisjunum og pokinn er úr niðurbrjótanlegu lífplasti. Þegar hann er opnaður stígur upp yndislegur ilmur og bragðið af tei í grisjum er enn betra en úr hefðbundnum tepokum.
Við hjá PiparTBWA hönnuðum nýtt útlit fyrir nýjar og vistvænni umbúðir Te & Kaffi. Anna Kristín Óskarsdóttir tók ljósmyndir og myndbönd og við útbjuggum markaðsefni til að kynna nýjungina fyrir neytendum.