Sjóvá

Kvennahlaup ÍSÍ

2021 mun vera þriðja árið sem við komum að Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ. Árið 2019 var merkilegt ár, 30 ára afmæli hlaupsins og mikið húllumhæ. Árið 2020 var stóra verkefnið að endurhugsa ímynd hlaupsins, endurhugsa Kvennahlaupsbolinn og alla framkvæmd með tilliti til umhverfisvitundar og ábyrgðar. Til viðbótar þurftum við þá að takast á við heimsfaraldur sem flækti verkið.

Í ár sá Pipar um alla hönnun bolsins sem er nýlunda, til viðbótar við aðra hönnun og hugmyndavinnu. Þar að auki leggjum við mikla áherslu á nýjan hlaupatíma en hlaupið hefur hingað til verið haldið í júní. Nú verður hlaupið 11. september um land allt og að sjálfsögðu hvetjum við hvert einasta mannsbarn til að mæta. Allar upplýsingar má finna á kvennahlaup.is hvar einnig má finna hlekk á miðasölu.

Stelpa á rauðum bakgrunni.
hópmynd.
Heilsíðuauglýsing.
Skjáir á síma.
Kvennahlaupsbolurinn.