Te og kaffi FIT Gull
11/04/2024

Myndlýsing fékk gullverðlaun

Te&Kaffi leggur mikinn metnað í vandaðar umbúðir fyrir sínar vörur og það á við um alla þætti ferlisins. Fyrir síðustu jól var kaffiunnendum að vanda boðið upp á sérvalið kaffi í jólaskreyttum umbúðum. Myndskreytingin á umbúðunum var unnin af Lindu Ólafsdóttur í hlýjum og rómantískum teiknistíl.

Te&Kaffi er fjölskyldufyrirtæki og myndin endurspeglar fólkið og viðskiptavini þeirra. Jólamyndin á umbúðunum hlaut gullverðlaun FÍT í flokki stakra myndlýsinga. Við þökkum myndhöfundi fyrir frábært samstarf.