kraftur still

Kraftur

Ég á lítinn skrítinn skugga

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, stendur fyrir vitundarvakningu undir yfirskriftinni Lífið er núna. Við fengum þann heiður að koma með hugmynd og framleiða sjónvarpsauglýsingu sem við köllum Ég á lítinn skrítinn skugga. Innblásturinn er hið þjóðþekkta lag Gunnars Þórðarsonar við texta Sigurðar Júlíusar Jóhannessonar sem hér heyrist í flutningi Rakelar Sigurðardóttur.

Við eigum öll okkar skugga sem mótar leið okkar, hvort sem við höfum greinst með krabbamein, einhver okkur nákominn eða vegna annarra áfalla sem orðið hafa á lífsleiðinni. Stundum er skugginn stór, stundum verður hann að daufum útlínum og stundum hverfur hann alveg undir skósólana. En skugginn er alltaf til staðar. Hann er þögull ferðafélagi og partur af lífi okkar allra.

Útsetningin tónlistarinnar er eftir Hafstein Þráinsson sem einnig hljóðritaði og framleiddi lagið. Leikstjórn, klipping og eftirvinnsla auglýsingarinnar var í höndum Allans Sigurðssonar hjá Atlavík. Ljósmyndir tók Atli Þór Alfreðsson. Hulda Halldóra Tryggvadóttir sá um stíliseringu og förðun.

Þá framleiddi Pipar allt stuðningsefni fyrir herferðina, prentefni, vefborða, útvarpsauglýsingar, viðtöl við félagsmenn og sitthvað fleira.

Lífið er núna.

dagblad

billboard bland kraftur
Kraftur