Hönnunarstofunni okkar í Noregi, Scandinavian Design Group, SDG, var falið að hanna ásýnd á nýtt orkufyrirtæki sem varð til við sameiningu fjögurra norskra fyrirtækja. Þau voru Tafjord, Sogn og Fjordane Energi, Tussa, og Sognekraft.
Nýja fyrirtækið varð við sameininguna eitt stærsta orkufyrirtækið í Noregi. Nafngiftin var upphafspunktur vinnunnar og fyrsti hluti verkefnisins. Þar varð niðurstaðan nafnið Wattn, en orðið er skemmtilegur samsláttur orða, þ.e. mælieiningarinnar vatt og svo þýðir vatn líka vatn á nýnorsku en á hefðbundinni norsku (bokmål) er það vann. Í kjölfar nafngiftarinnar hannaði SDG vörumerki, stafrænt viðmót og hreyfigrafík.
Við óskum félögum okkar í Noregi og Wattn til hamingju með nýtt nafn og útlit.


