saman i lidi
10/04/2025

Við erum öll í sama liðinu

Þann 8. mars fór í loftið alþjóðlegt verkefni fyrir UN Women sem við köllum March Forward. UN Women á Íslandi leiðir þessa risavöxnu auglýsingaherferð með Pipar\TBWA sér til halds og traust. Hér á stofunni varð hugmyndin til og héðan frá Íslandi er öllu miðstýrt, með dyggri aðstoð frá samstarfsaðilum um allan heim.

Á þeim tíma sem leið frá því að beiðnin um verkefnið barst til okkar og þar til herferðin fór í loftið snerist pólitískt landslag veraldarinnar bókstaflega á hvolf. Í þessum sviptivindum hefur verið afar lærdómsríkt að laga sig að breyttum aðstæðum og taka mið af fleiri og flóknari sjónarmiðum sem bættust við eftir því sem á leið. Kjarninn stóð þó alltaf ósnertur — að sporna við bakslagi í jafnréttismálum kvenna um heim allan.

Öll viljum við jafnrétti, sanngirni og betri heim þó við séum ekki alltaf sammála um hvað telst sanngjarnt, hvað jafnrétti er og hvaða aðferðum skal beitt. Við komum úr ólíkum áttum, höfum ólíkan bakgrunn og okkar verkefni er að mætast á miðjum vellinum þar sem við getum öll fundið jafnvægi.

Í vinnu okkar með UN Women undanfarna mánuði höfum við lært að sjónarhornin eru mörg, áherslurnar mismunandi og merking orða ólík milli menningarheima. Hugtök og aðgerðir sem okkur þykja sjálfsagðar og gagnast baráttunni hér á Íslandi geta reynst skaðlegar annars staðar. Þetta er okkar að skilja og meðtaka án þess að slaka á kröfunni um jafnrétti og betri veröld.
Nú förum við áfram!