Stór hluti landsmanna þekkir bætiefnin frá Happy Hydrate. Þau innihalda mikilvæg steinefni, sölt og ýmis næringarefni sem á að blanda út í vatn til að hjálpa líkamanum að viðhalda vökvajafnvægi – og eru fáanleg í nokkrum mismunandi bragðtegundum.
Áberandi umbúðir einkenna vörurnar frá Happy Hydrate, en þær eru einmitt hannaðar hér á Pipar\TBWA, ásamt vörumerkinu sjálfu, POS-efni og ýmsu fleiru tilheyrandi, að ógleymdri mörkunar- og stefnumótunarvinnunni sem innt var af hendi í upphafi. Happy Hydrate hefur vaxið hratt og margt spennandi er framundan hjá fyrirtækinu.


