Orðsporsstjórnun

Orðspor vörumerkis er ein stærsta og verðmætasta eign þess. Aðeins með því að hlúa að ímyndinni á faglegan hátt má byggja upp traust og velvild.

Hjá FEED sérhæfum við okkur í að byggja upp og styrkja orðspor fyrirtækja. Við vinnum markvisst og skipulega í nánu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk, því gott orðspor verður ekki til af sjálfu sér – það byggist upp innan frá og þá þarf allt fyrirtækið að vera með.

Við nýtum eigin miðla fyrirtækja, rödd þeirra og fjölmiðla til að efla hróður vörumerkisins, í samhljómi við annað markaðsefni fyrirtækisins.

Öflug orðsporsstýring er besta leiðin til að forðast alvarlega krísu. Vörumerki með sterkan orðstír standa af sér storminn hraðar og falla síður lengi í ónáð almennings.