Umsjón samfélagsmiðla
Stór hluti almennings fær upplýsingar sínar í gegnum samfélagsmiðla. Þar á fólk í samskiptum og leitar að tengingu og félagsskap. Segja má að samfélagsmiðlar séu orðnir að eins konar félagsmiðstöðvum nútímans.
Samfélagsmiðlar eru því frábær vettvangur til að ná til fólks og eiga í samskiptum við það, en það skiptir máli hvernig það er gert. Áður en haldið er af stað í þá vegferð er mikilvægt að skilgreina markmið og markhópa og móta samfélagsmiðlastefnu.
Hjá FEED starfa sérfræðingar í lífrænni efnissköpun fyrir samfélagsmiðla. Við kunnum að ná til markhópa á þeim miðlum sem þeir nota. Við skrifum texta, búum til myndskeið, setjum upp grafík og kostum færslur, allt eftir því hvað þjónar markmiðum hvers vörumerkis. Við setjum upp samfélagsmiðladagatöl, mörkum stefnu, aðstoðum við að setja upp reikninga og sjáum um allt viðkemur samfélagsmiðlum fyrir viðskiptavini.
Auglýsingar og birtingar á samfélagsmiðlum eru einnig áhrifaríkur kostur. Í samstarfi við Ceedr tryggjum við að upplýsingar um vörur og þjónustu berist til réttra markhópa. Vel útfærð herferð á samfélagsmiðlum eykur vitund og styrkir stöðu vörumerkisins á netinu.