krossmidlun 2025 2089
09/10/2025

Óttablandin gleðitilfinning yfir nýrri tækni

Við héldum Krossmiðlun, ráðstefnu um markaðsmál, 11. september síðastliðinn á Hótel Reykjavík Grand. Húsfyllir var á ráðstefnunni, sem bar yfirskriftina Vistkerfi vörumerkja, enda öflugir og áhugaverðir fyrirlesarar á mælendaskrá. Matthew Moran nefndi í sínum fyrirlestri hvað við sitjum uppi með ótrúlega mikið af hrútleiðinlegum auglýsingum sem fáir taka eftir og enn færri bregðast við og nefndi tölur máli sínu til stuðnings. Hann heldur því fram að aðeins 20% auglýsinga nái raunverulega til fólks en um leið að öllu skipti að segja góða sögu.

Samt er gott að við áttum okkur á því að það þarf ekki alltaf djúpa vasa til þess að vekja athygli á vöru eða þjónustu. Paula Sonne, sérfræðingur hjá Eleven\TBWA í Finnlandi, minnti á að snjallar hugmyndir og skapandi nálgun í almannatengslum geta verið sterkt afl til þess að vekja athygli langt út fyrir ramma auglýsingabirtinga. Fyrir þau sem ekki komust á Krossmiðlun má benda á viðtal við fyrirlesarana í Morgunblaðinu.

Muna einhver eftir þegar við fórum úr faxinu yfir í internetið, tölvupóstana? Stafræn tækni hefur ruðst fram með töluverðu offorsi í gegnum tíðina og verið mætt með verðskulduðum skepsís. Filmuvinnsla fyrir prentmiðla er dæmi um grein sem lagðist af og þeir sem unnu við hana urðu að finna sér nýjan starfsvettvang. Í flestum tilvikum fólst það reyndar í því að læra á og tileinka sér nýju tæknina og fá hana með sér í lið.

Stundum veltir maður því fyrir sér hvað það er sem knýr framþróun tækninnar. Er það þörf? Hver hefur þessa þörf, til dæmis fyrir vissar tæknilausnir? Er líf manns miklu betra með eina fjarstýringu sem stýrir öllum ljósum heimilisins, já eða heimilistækjunum? Að gardínum meðtöldum. Fjarstýringu? Við erum sennilega að tala um app. Tækninýjungum fylgir oft óttablandin gleðitilfinning. Hvað nú? Hvað um mig?

Gervigreindin telst svo sannarlega þar með og sjálfsagt að fyllast efasemdum gagnvart henni eða í það minnsta að slá nokkra varnagla. Fáar tækninýjungar síðari ára hafa valdið jafnmiklum usla/ugg og hún. Ekki síst vegna þess að um leið og hún veiðir sér upplýsingar úr öllum áttum frá hverjum sem er þá er hún ekki alltaf áreiðanleg eða klár. Gervigreind er tól sem er fínt að nýta sér en er hvorki guð almáttugur né fjandinn sjálfur. Það kemur ekkert í staðinn fyrir frábært fólk – og ekta mennskan sköpunarkraft.