fastus lausnir
06/11/2025

Fastus lausnir

Fastus ehf. hefur um langt árabil flutt inn og selt hágæðavörur, tæki og búnað fyrir fyrirtæki og fagaðila í hótel- og veitingageiranum. Við tókum þátt í endurmörkun Fastus fyrir tveimur árum, eftir sameiningu við Expert – og þessi hluti fyrirtækisins heitir nú Fastus lausnir. Fastus er einnig samstarfs- og styrktaraðili íslenska kokkalandsliðsins og æfingaeldhús liðisins er í höfuðstöðvum Fastus á Höfðabakka í Reykjavík.

Nýlega unnum við nýtt ímyndarefni fyrir Fastus lausnir, með aðstoð Skjáskots. Snorri okkar Sturluson leikstýrði, Davíð Goði var á myndavélinni og Bernhard Kristinn tók ljósmyndir.