jolastess
18/12/2025

Spjallað um jól

Það styttist í jól og kannski hefur blóðþrýstingurinn eitthvað hækkað hjá einhverjum um þessar mundir. Stressköstin yfir því að hafa ekki lokið því sem þarf að gera, eða því sem fólk telur sig þurfa að gera. Nú eða bara allt kreisí í vinnunni.
Þó er nokkuð ljóst að margir eru langt komnir með jólagjafakaupin, ef tekið er mið af því að afsláttardögum mánuði fyrir jól fer sífellt fjölgandi. Innlendar verslanir mega sín ef til vill lítils í baráttunni við erlenda risa úr austri en flestar verslanir, ef ekki allar, reyna þó að taka þátt í afsláttaræðinu.

Enda eru vöruviðskipti okkar óhagstæð um marga milljarða í nóvember, en þó hagstæðari en á sama tíma fyrir ár, samkvæmt Hagstofunni.
Óhagstæður vöruskiptajöfnuður hindraði okkur þó reyndar ekki í því að bæta utanlandsferð ofan á fjárhagsáætlunina og áðurnefnd jólainnkaup, en nóvembermánuður er sá stærsti í sögu Icelandair með nýju meti í sætanýtingu.

Síðan 2006 hefur Rannsóknarsetur verslunarinnar staðið fyrir vali á jólagjöf ársins. Ef til vill má lesa vissan aldarspegil út úr þeim niðurstöðum í gegnum tíðina en í fyrra var jólagjöf ársins „Allt fyrir pizzagerðina“. Sem sagt frekar skýrt afmarkað dót. Árið þar á undan voru það „Samverustundir“ en jólagjöfin ársins í ár er „Praktísk gjöf sem skilur eitthvað eftir sig.“

Við höfum flest heyrt viðtöl við fólk sem bara nýtur aðventunnar í desember af því allt er vel undirbúið og klárt, svo mikil jólabörn. Gjafir tilbúnar og innpakkaðar og tíminn nýttur í að sækja tónleika og önnur skemmtileg mannamót. Þetta er líklega skipulagða fólkið sem býr auk þess yfir hæfileikanum til að virkja allar vökustundir til að gera gott í kringum sig. Við erum ekki öll svona, þó að við værum líklega til í það. Gott til þess að vita að gefnir eru út tugir þúsunda sjálfshjálparbóka í heiminum árlega. Kannski er besta leiðin til sjálfshjálpar almennt og innri friðar að lesa bara venjulega bók. Maula með henni laufabrauðið sitt í friði og ró. Eða fara í kirkju, við erum svolítið fyrir það þessa dagana, ekki síst eftir gefandi vinnu fyrir þá stofnun að undanförnu. Í öllu falli, slökum okkur bara aðeins niður, það þarf ekki þetta stress. Gleðileg jól!