Lexus

Jóhannes Haukur

Farsælt samstarf Lexus og stórleikararans Jóhannesar Hauks hófst fyrir allmörgum árum, þegar hann varð útvarpsrödd Lexus. Árið 2022 framleiddum við svo dágóðan pakka af ímyndarauglýsingum fyrir sjónvarp með honum í aðalhlutverki, ásamt glæsilegum Lexusbílum. Og nú, fjórum árum síðar, var kominn tími á nýtt efni. Mótleikari hans að þessu sinni er splunkunýr, alrafmagnaður Lexus RZ. Líkt og áður er Jóhannes á japönskum nótum í sumum handritanna, enda má segja að gildi vörumerkisins séu með djúpar rætur í japanskri heimspeki, hefðum og handverki. En hann á einnig við okkur nokkur skemmtileg trúnaðarsamtöl um sína eigin list, leiklistina.

Hugmynda- og handritsvinna var í okkar höndum en Magg ehf. framleiddi; Ari Magg leikstýrði og ljósmyndaði, Ásgrímur Guðbjartsson var á tökuvélinni, Auður Karitas sá um búninga og Helena Jónsdóttir um hár og smink, auk þess sem Ásta Hafþórs lagði til aðstoð við gervi í einni senu. Þá sérsmíðaði leikmyndafyrirtækið Irma sömuleiðis glæsilega, „japanska“ leikmynd fyrir tvær senur. Úlfur Teitur Traustason klippti en Pipar og Trickshot sáu um eftirvinnslu. Tónlistina á sem fyrr, Úlfur Eldjárn, og Jói B. hjá Audiolandi sá um hljóðsetningu.