Þeim fjölgar stöðugt sem kjósa að versla á netinu. Að sama skapi verður það mikilvægara fyrir vefverslanir að fylgjast vel með nýjungum, nýjum verkfærum og hvað það er sem raunverulega skiptir máli til að ná árangri í rekstri vefsölufyrirtækja.
Shopify Meetup 2026 var haldið 5. mars sl. í Smárabíói við mjög góðar undirtektir en milli 140–150 fyrirtæki mættu til að kynna sér helstu nýjungar. Raunar þurfti að skipta tvívegis um fundaraðstöðu til að rúma þá sem vildu koma. FINDS þakkar kærlega öllum sem komu á viðburðinn og lofar nýrri Shopify-fræðslu innan tíðar.


