anaegja er 1
12/03/2026

Ánægja er … að deila sinni ánægju

Sjóvá opnaði á dögunum vefsíðuna www.ánægjaer.is þar sem almenningi gefst kostur á því að senda inn sínar hugmyndir um ánægju. Fyrir hverja innsendingu styrkir Sjóvá geðræktarátak Geðhjálpar, G-vítamín, um 500 kr. og þegar þetta er ritað er söfnunin komin yfir milljón. Innsendingarnar höfum við birt á strætóskýlum, skiltum, vefborðum, samfélagsmiðlum og víðar, en margar þeirra má einnig lesa á vefsíðunni sjálfri.