Nýjar Lexusauglýsingar tóku nýlega að birtast en stórleikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson er þar í aðalhlutverki ásamt splunkunýjum, alrafmögnuðum Lexus RZ. Fjögur ár eru síðan við gerðum síðustu sjónvarpsherferð með Jóhannesi. Líkt og áður er hann á japönskum nótum í sumum handritanna, enda má segja að gildi vörumerkisins séu með djúpar rætur í japanskri heimspeki, hefðum og handverki. En hann á einnig við okkur nokkur skemmtileg trúnaðarsamtöl um sína eigin list, leiklistina.
Hugmynda- og handritsvinna var í okkar höndum en Ari Magg leikstýrði og ljósmyndaði. Nánar um framleiðslu.


