Menntavísindasvið Háskóla Íslands flutti nýverið í nýtt og glæsilegt húsnæði við Hagatorg. Aðstaðan hlaut nafnið Saga enda ekki mörg ár síðan að Hótel Saga lauk þar starfsemi sinni. Það kom í okkar hlut að þróa og framleiða herferð til þess að hvetja fólk til að skrá sig í kennaranám og hlaut verkefnið yfirskriftina Vertu kennari.
Bernhard Kristinn sá um tökur ljósmynda og hreyfiefnis en öll eftirvinnsla var unnin hér á stofunni í samvinnu við hann.


