Sjúkást er forvarnarátak á vegum Stígamóta um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Markmið átaksins er að efla þekkingu og umræðu og hvetja ungt fólk til þess að greina og ræða muninn á heilbrigðum, óheilbrigðum og ofbeldisfullum samböndum. Að þessu sinni fengum við Halldóru Geirharðsdóttur til liðs okkur en hún kom að handritagerð, leikstýrði á setti og lék í herferðinni ásamt þeim Björk Guðmundsdóttur og Fannari Arnarssyni.
Umfjöllunarefni ársins er suð, sá ljóti leikur að suða út samþykki í stað þess að hlusta á og meðtaka það sem aðrir segja. Verkefnið var kvikmyndað hjá vinum okkar í Skjáskoti sem studdu þetta þarfa verkefni með ráðum og dáð.
Pipar\TBWA hefur fylgt verkefninu um sjúka ást frá upphafi og er þetta 9. árið í röð sem við komum að hugmyndavinnu og uppsetningu átaksins.


