L1020515 copy

Morgunfundur

Smásölumiðlun (retail media)

25. september í húsakynnum PiparsTBWA, Guðrúnartúni 8.

Húsið opnar kl. 8:30, fundurinn hefst kl. 9:00.

Ágæti samstarfsaðili

Morgunverðarfundur um smásölumiðlun HAGA MIÐLA verður haldinn 25. september í húsakynnum PiparsTBWA, Guðrúnartúni 8* og hefst kl. 9:00, stundvíslega. Viðburðurinn er án endurgjalds en sætaframboð er takmarkað. Þér er velkomið að áframsenda póstinn á aðra í þínu fyrirtæki sem þú telur að hafi gagn af að kynna sér þennan nýja og áhrifaríka miðil.
Boðið er upp á hressingu í upphafi fundar.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Á FUNDINN

Við hlökkum til að sjá þig.

Dagskráin er sem hér segir:

8:30 Húsið opnar – morgunhressing og spjall

9:00 Hvernig er smásölumiðlun frábrugðin öðrum birtingum?

Huld Óskarsdóttir, birtingastjóri hjá PiparMedia, fer yfir hvernig smásölumiðlun lítur út frá sjónarhóli birtingaaðila og hvernig þessi miðill fellur að öðrum miðlum í herferðum.

9:25 Markaðssetning nær viðskiptunum

Sesselía Birgisdóttir frá Högum miðlum fjallar um tækifæri vörumerkja til að ná til viðskiptavina inni í verslunum Haga. Hún sýnir raunveruleg dæmi um hvernig vörumerki hafa nýtt smásölumiðla sem hluta af markaðssetningu sinni og hvaða árangri það hefur skilað. Að lokum beinir hún sjónum að einu stærsta sölutímabili ársins og fer yfir þau fjölbreyttu tækifæri sem vörumerkjum standa til boða til að auka sýnileika og ná til viðskiptavina þar sem kaupin eiga sér stað.

Til viðbótar verður farið yfir raundæmi um árangur.

10:00 Spurningar og samtal

*Bílastæði við Guðrúnartún 8 eru fyrir framan húsið (gjaldskyld, svæði 3), meðfram Sæbraut. Gengið er inn í húsið úr portinu, niður tröppur á bak við. Verið velkomin!