Markaðsráðgjöf

Hjá PiparTBWA veitum við markaðsráðgjöf á breiðu sviði, bæði það sem kallað hefur verið hefðbundin markaðsráðgjöf, en einnig stafræna markaðsráðgjöf sem nær yfir herferðir í samstarfi við Ceedr og lífræna efnissköpun í samvinnu við FEED.

Þannig fá viðskiptavinir okkar heildstæða þjónustu, því óháð því á hvaða miðlum verið er að vinna þá starfa hjá okkur reynsluboltar í markaðsráðgjöf. 

Við markaðsráðgjöf vinnum við náið með viðskiptavinum okkar að þeim markmiðum sem við setjum fyrir vörumerkin. Þannig byggjum við upp langtímasamband og traust, og höfum í gegnum tíðina fylgt fjölmörgum vörumerkjum í gegnum þróun, sameiningar, nýsköpun og breytingar. Þú getur treyst því að í okkar höndum finnur vörumerkið sína leið til að koma réttu skilaboðunum á framfæri við núverandi og væntanlega viðskiptavini.

Markaðsráðgjafar

Markaðsráðgjafar okkar hafa áralanga reynslu af ráðgjöf á sviði markaðsmála og búa yfir fjölbreyttri þekkingu á auglýsingamarkaði sem viðskiptavinir geta treyst á. Þeir eru tengiliðir okkar við viðskiptavini, bera ábyrgð á verkefnum og fylgja þeim eftir í gegnum allt framleiðsluferlið til að tryggja að markmið og tímasetningar standist.

Við leggjum áherslu á náið samstarf og trúum því að góð samskipti skapi bestu niðurstöðurnar og oftar en ekki mynda markaðsráðgjafar okkar sterk og samstillt teymi með markaðsstjóra eða markaðsdeild viðskiptavina.