Eitt af stærstu vandamálum samtímans er ofnotkun okkar á snjallsímum – og þar erum við meira og minna öll sek. Eins og símarnir eru frábær tæki og nauðsynleg í nútímasamfélagi, þá eru þeir því miður farnir að hafa gríðarleg áhrif á samskipti fólks og ræna okkur athygli, jafnt á dýrmætum fjölskyldustundum sem í góðra vina hópi. Jafnvel draga úr frumkvæði okkar og getu til ýmissa hluta sem áður þóttu sjálfsagðir og gáfu lífinu lit. Símabann í skólum er ein birtingarmynd þess að við erum að vakna til vitundar um þennan vanda.
Fyrir tveimur árum hófst samstarf okkar við Fjölmiðlanefnd og Tengslanet um miðlalæsi, sem einnig hefur staðið að Saft-verkefninu (Samskipti, fjölskylda og tækni). Upp úr þeirri vinnu spratt nafnið Netvís – netöryggismiðstöð Íslands, sem er nú hatturinn yfir þessi verkefni. Og nú hefur fyrsta herferðin litið dagsins ljós.
Líttupp-herferðin er vitundarvakning sem ætlað að hvetja okkur öll – börn, ungmenni og fullorðna – til að staldra við, líta upp úr skjánum og taka virkari þátt í lífinu í kringum okkur. Erindi Líttupp er ekki síður að skapa samtal um heilbrigðari og ábyrgari tækjanotkun, jákvæð samskipti og kosti þess að vera meira til staðar í raunheimum. Auk þriggja kvikmyndaðra auglýsinga birtist herferðin á veggspjöldum, vef- og útimiðlum auk þess sem útbúin voru bæði armbönd til áminningar og límmiðar til að líma yfir myndavélalinsur á símum. Að ógleymdri lendingarsíðunni Líttupp.is, þar sem finna má ýmiskonar góð ráð og fróðleik.
Skot framleiddi sjónvarp og Þóra Hilmars leikstýrði. Bernhard Kristinn tók ljósmyndir.


