Samskiptastefna

Til að ná árangri í samskiptum þurfa að liggja fyrir skýr stefna og vel skilgreind markmið. Samskiptastefna hjálpar fyrirtækjum að skilgreina hvað þau vilja segja, við hvern, hvar og hvers vegna.

Hjá FEED starfa sérfræðingar í samskiptum með yfirgripsmikla þekkingu á samskiptum við almenning, fjölmiðla og aðra hagaðila.

Með vandaðri samskiptastefnu verða kjörnun lykilskilaboða og markmiðin skýr. Við vinnum í nánu samstarfi við fyrirtæki við að skilgreina mælanleg markmið, markhópa og móta samskiptaáætlun sem segir til um hvar, hvenær, hvernig og hvers vegna þau vilja ná til fólks. Og þegar þarf að stíga fram, aðstoðum við stjórnendur og starfsfólk við að koma fram opinberlega af öryggi og skýrleika.

Við aðstoðum einnig fyrirtæki við að móta skýra stefnu fyrir innanhússsamskipti og vinnum náið með stjórnendum að mótun stefnu og innleiðingu hennar. Ferlinu fylgjum við svo eftir með reglulegu mælanlegu stöðumati.