Í framhaldi af stefnumótunarvinnu með Deloitte varð til herferðin Góður punktur, sem er augljós vísun í myndmerki félagsins, en einnig alla þá góðu punkta sem ráðgjafarnir luma á.
Stuttir og hnitmiðaðir fræðslu- og upplýsingapunktar um fjölbreytt málefni hafa birst í ýmsum miðlum til að vekja athygli á yfirgripsmikilli þekkingu starfsfólks, en einnig var hinn geðþekki ráðgjafi og talskona, Dagný Eva Loitte, sköpuð með hjálp gervigreindar, úr andlitum allra 360 ráðgjafa Deloitte á Íslandi.
Jonmundur.is aðstoðaði svo við að gæða Dagnýju lífi svo hún gæti kastað fram áhugaverðum punktum á sinn persónulega hátt.


