Á síðustu árum hefur markaðurinn einbeitt sér meira að skilvirkni og skammtímamælingum á kostnað dekkunar og raunverulegrar vörumerkjauppbyggingar.
Flest markaðsfólk þekkir nafnið Les Binet en hann, ásamt Peter Field, hefur rannsakað áhrif langtíma vörumerkjauppbyggingar og skammtíma söluaðgerða á árangur yfir tíma. Á IPA Effectiveness Conference á dögunum hélt Les Binet erindið „Go Big or Go Home“ ásamt Will Davis frá Medialab Group.
Ráð fyrirlesaranna til markaðsfólks, í stuttu máli:
Hugið að breiðu miðlavali og alls ekki hunsa hefðbundna miðla sem eru sterkir í ímyndarsköpun. Finnið jafnvægi á milli hefðbundinna og stafrænna miðla. Leggið áherslu á dekkun fyrr en tíðni. Sköpun og hugmyndaauðgi eru mikilvægur hluti af því að vörumerki nái árangri en hugmyndirnar þarf að vera hægt að útfæra þvert á miðla.
Í áætlanagerð er markaðsfólk hvatt til þess að forgangsraða fjárfestingum í umfangi birtinga og skapandi hugmyndum. Vöxtur verður til með sýnileika, sköpunarkrafti og fjárfestingu sem er nógu öflug til að hafa áhrif á árangur.


