Lengi hefur tíðkast sú hefð þegar fyrirtæki og stofnanir eiga afmæli að gera afmælisútgáfu af merki þeirra, útfæra merkið til að minna á afmælisárið. Jafnvel er gert sérstakt merki sem látið er fylgja með aðalmerkinu það árið í stíl við aðalmerkið. Merkið á myndinni hér fyrir ofan var gert fyrir Kópavogsbæ í tilefni 70 ára afmælis sveitarfélagsins.
Það var Tryggvi Tryggvason sem hannaði merkið. Tryggvi hannaði líka 60 ára afmælismerki Kópavogsbæjar á sínum tíma og einnig 200 ára afmælismerki Reykjavíkurborgar.


