meira ljos
08/01/2026

Meira ljós á morgun

Míla lýsti upp skammdegið með snarpri herferð sem birtist á útiskiltum, útvarpi og vefborðum í kringum vetrarsólstöðurnar. Herferðin var tísuð inn með upplýsingum um birtutíma og myndrænni túlkun birtunnar á hverjum degi þar til á vetrarsólstöðunum 21. desember. Þá birtist landsmönnum bjartur, gulur grunnur og skilaboðin „Meira ljós á morgun“ blöstu við vegfarendum, sem létt áminning um bjartari tíma sem framundan eru.