aida social
08/05/2025

Pipar\TBWA eignast hlut í Aida Social

Pipar\TBWA hefur eignast hlut í Aida Social sem er norsk-breskt fyrirtæki. Fyrirtækið hefur þróað heildstætt gervigreindarforrit sem hannar, skapar og býr til efni, allt frá samfélagsmiðlaefni, agulýsingum, bloggi og fréttabréfum yfir í almannatengslaefni og efni fyrir innri samskipti. Þetta kerfi er hannað fyrir auglýsingastofur og innanhússteymi markaðsdeilda sem þurfa að skila gæðaefni án þess að auka kostnað eða mannafla. Aida kerfið veitir yfirsýn í gegnum öflugt utanumhalds- og skipulagskerfi og veitir innblástur að daglegri sköpun á samfélagsmiðlum. Myndin sem hér fylgir frá undirskrift samningsins.