Samskipti og almannatengsl

Almannatengsl eru stefnumótandi samskiptaferli sem byggir upp gagnkvæm tengsl milli fyrirtækja og almennings.

Samskipti fyrirtækja við almenning þurfa að byggja á faglegri stefnumótun og skipulagningu þar sem í forgrunni þurfa að vera skýr skilaboð um vörumerkið.
Allt efni og öll skilaboð þurfa að segja sömu sögu hvort heldur sem er í fjölmiðlum, á samfélagsmiðlum, við símsvörun, í tölvupóstsamskiptum, á heimasíðum, á viðburðum eða í samtölum jafnt þegar vel gengur og þegar illa fer.
Við erum sérfræðingar í að tala við fólk. Við þekkjum fjölmiðlana út og inn og þekkjum hvað virkar og hvað ekki á samfélagsmiðlum, vefsíðum, í fjölmiðlum og fréttabréfum.
 
Hjá Ceedr höfum við einnig sérhæft okkur í stafrænum almannatengslum eða ePR, því almannatengsl þarfnast uppbyggingar og trausts, þau eru ekki bara verkfæri sem þarf að grípa til við krísustjórnun.