MS

Svo ljúfur, mildur og mjúkur

MS leitaði til okkar á dögunum með það ostríðufulla verkefni að lyfta örlítið hinum mjúka, milda, bragðgóða og rjómakennda Óðals Búra, ostinum sem er innblásinn af dönskum rjóma-Havarti – og í leiðinni vekja athygli á því að Búri er nú einnig fáanlegur í sneiðum.

Upphaflega var ætlunin að herferðin færi nær eingöngu fram í samfélagsmiðlamyndböndum, en þegar hugmyndin að nafna hans, hinum geðþekka og vinalega Búra var komin í pípurnar og leikarinn ljúfi, Ari Ísfeld Óskarsson mátaður við hlutverkið, stækkaði verkefnið á skemmtilegan hátt og endaði í sjónvarpi, bíóhúsum, útimiðlum, prenti og vefmiðlum.