Dom Godgerd
10/04/2025

12 milljónir söfnuðust

Góðgerðarpizza Domino’s og Hrefnu Sætran var til sölu í 12. skiptið í vikunni og að þessu sinni var það Minningarsjóður Bryndísar Klöru sem naut góðs af. Sjóðurinn var stofnaður til að heiðra minningu Bryndísar Klöru, sem lést á Menningarnótt 2024. Hún var starfsmaður Domino’s.

Söfnunin fór fram úr björtustu vonum. Salan hófst á mánudaginn og pizzan seldist upp í gær, degi fyrir áætlaðan lokadag. Þá höfðu verið keyptar Góðgerðarpizzur fyrir rúmar 12 milljónir, sem renna óskiptar í minningarsjóðinn. Aldrei hefur safnast jafn mikið. Það þykir okkur óskaplega vænt um, eins og öllum sem komu að verkefninu.

Bleiku svunturnar, eins og sú sem Hrefna klæðist í auglýsingunum, voru til sölu í Kringlunni, til styrktar sjóðnum.