Shopify Meetup

fimmtudaginn 5. mars 2026.

Shopify-umhverfið er í stöðugri þróun og nýjungar eru að móta hvernig fyrirtæki vinna með vefverslanir í dag. Ný verkfæri, breyttar áherslur og nýir möguleikar kalla á skýrari sýn á hvað skiptir máli í rekstri. Hvað er að breytast? Hvað nýtist í raun?

Shopify Meetup 2026 er ætlað verslunum og fyrirtækjum sem starfa á Shopify, auk þeirra sem eru að meta hvort Shopify henti þeirra rekstri.

Við förum við yfir nýjungar í Shopify-umhverfinu og ræðum hvernig þær nýtast í raun fyrir ólíka aðila. Við setjum fókus á fyrirtæki sem eru að byrja á Shopify, fyrirtæki sem standa sig vel á heimamarkaði og fyrirtæki sem hafa náð árangri á alþjóðlegum markaði.

Markmiðið er að varpa ljósi á ólíkar leiðir, mismunandi nálganir og raunverulega reynslu úr Shopify-umhverfinu — í samtali og umræðu.

Takmarkað miðaframboð!

Við sjáumst í Smárabíói, fimmtudaginn 5. mars kl. 17:30–19:30.

Staðsetning

Smárabíó, Smáralind, 201 Kópavogur.
Fimmtudaginn 5. mars kl. 17:30–19:30

Dagskrá

Einar Thor — FINDS
Helstu nýjungar í Shopify-umhverfinu. Stiklað á stóru um nýjustu uppfærslur ársins.

Elín Svafa Thoroddsen — Geysir
Undirbúningur og hönnun vefverslana með áherslu á vörumerki og upplifun.

Stefán Claessen — Pizzaofnar.is
Frá 8 í 130 milljón króna veltu – Vöxtur OONI á Íslandi.

Danielle Neben — Unbroken
One Brand – Multiple Markets.

Hreggviður Magnússon — Ceedr
Sýnileiki vefverslana og hvað skiptir máli með tilkomu gervigreindar.

Klara Símonardóttir — Rannsóknarsetur verslunarinnar
Erlend netverslun 2025: Hvað segja tölurnar – og hvað þýðir það fyrir íslenskar netverslanir?

Skráning

Viðburðurinn er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig.