Gosfélagið

Vatn og kolsýra

Klaki fæst í næstu verslun. En hann breytir ekki lífi þínu. Hann gerir lífið ekkert skemmtilegra og hann gerir þig ekki að betri manneskju. Klaki er bara vatn og kolsýra. Stundum bragð.

Við endurmörkuðum Klaka. Fyrir Gosfélagið. Teiknuðum nýtt lógó. Hönnuðum nýjar umbúðir. Gerðum auglýsingaherferð.

Tómas Lemarquis lék. Einar Egilsson leikstýrði. Atli Þór Alfreðsson ljósmyndaði. Framleiddi líka. Eydís Evensen bjó til hljóðheim. Audioland sá um hljóðvinnsluna. Helga Lilja Magnúsdóttir var stílistinn. Klakavinnslan sagaði út ísskúlptúr.

Klaki fæst í næstu verslun. En hann breytir ekki lífi þínu..