Nú í vikunni litu dagsins ljós fyrstu auglýsingar í annarri seríu Allt ódýrt-herferðarinnar sem við unnum fyrir Bónus. Þar er Sigurjón Kjartansson enn í hlutverki hins ábúðarmikla verslunarstjóra, ögn meira fjarverandi en þó stöðugt nálægur – og Viktor Breki Auðunsson sem fyrr hinn dyggi og ofurliðlegi Bónusstarfsmaður.
Í nýju seríunni kynnum við meðal annars nýtt Bónusblað og nýtt verðkonsept í Bónus, Ódýrast vikunnar. Framleiðsla að þessu sinni var í höndum Skjáskots og leikstjórn í höndum Péturs Þórs Ragnarssonar og Davíðs Goða Þorvarðarsonar, sem jafnframt stýrði upptökum. Bernhard Kristinn tók ljósmyndirnar.


