Ísey Skyr Bar kom til okkar í þjónustu á síðasta ári og gekk í gegnum endurmörkun. Nýjasta samstarfsskálin var svo kynnt í þessari viku, en það var lífsstílskúnstnerinn og orkuboltinn Aron Can sem setti saman Ferskan fókus. Miklar pælingar og langar, vísindalegar tilraunir skiluðu sér að lokum í þessari girnilegu og bragðgóðu próteinbombu.
Markaðsefnið var tekið upp af Sigurði Pétri Jóhannssyni.


