Starfsfolk Pipars TBWA
12/03/2026

Átta styttur og stofa ársins

Við vorum glöð og ánægð að loknum ÍMARK-degi og Lúðrinum, íslensku auglýsingaverðlaununum sl. föstudag – enda uppskeran góð og rík ástæða til að gleðjast. Við vorum valin Auglýsingastofa ársins þriðja árið í röð og í 5. skipti á 11 árum. Könnunin er gerð af Prósenti meðal stjórnenda markaðsmála stærstu fyrirtækja landsins, viðskiptavina auglýsingastofa og félagsfólks ÍMARK, alls tæplega 500 manns, en þeir þættir sem vega þyngst eru: Hugmyndaauðgi, fagleg vinnubrögð, áhersla á árangur viðskiptavina og þjónusta og viðmót starfsfólks. Að Lúðrum og ÁRU-styttum ólöstuðum, þá er þessi nafnbót líklega sú sem lifir lengst og gleður hvað mest.

En auðvitað er líka gaman að taka við verðlaunum. ¡Hola!-herferð Colas hreppti ÁRU, verðlaun fyrir árangursríkustu herferð ársins. Meginmarkmið hennar var að þrýsta á stjórnvöld að auka fjárveitingar til viðhalds vega og vegagerðar almennt. Það skilaði þriggja milljarða viðbótarframlagi sem samþykkt var í fjáraukalögum. Þetta var aðeins í þriðja sinn síðan 2013 sem framlög til málaflokksins hafa verið hækkuð í fjáraukalögum – og sexfalt hærri upphæð en sú næsthæsta á tímabilinu.

Lúðraþytur lætur sömuleiðis alltaf vel í eyrum auglýsingafólks. Við fengum sjö Lúðra, sex gull og einn silfur á Lúðrahátíðinni sjálfri. ¡Hola!-herferðin var valin herferð ársins, auk þess að fá Lúðra í flokki styttri kvikmyndaðra auglýsinga, stafrænna auglýsinga og hljóðauglýsinga. Ný ásýnd Þjóðkirkjunnar fékk Lúður fyrir mörkun og verkefnið Ég trúi á minn hátt fyrir Þjóðkirkjuna sömuleiðis fékk Lúður sem besta gagnvirka stafræna auglýsing ársins. Þá fékk kvikmyndaða auglýsingin Ég á lítinn skrítinn skugga, sem við gerðum fyrir Kraft, silfur í samnefndum flokki almannaheillaauglýsinga.

En þó að það sé óskastaða og afskaplega gaman að fá verðlaun, þá má ekki gleyma því að það er stór viðurkenning að fá tilnefningu, enda samkeppnin hörð. Það sem eftir situr er breiddin í verkefnunum, hugmyndaauðgin og fagmennskan í auglýsingageiranum heilt yfir. Það er það sem skiptir mestu máli, skapar atvinnu fyrir fjölda fólks og gerir greinina eftirsóknarverða. Áfram auglýsingar!