UN vefur pipar collage 1
08/01/2026

Bjartsýn inn í nýja árið

Síðasta ár var viðburðaríkt hjá okkur hér í Kaaber-húsinu þar sem við tókum þátt í fjölda skemmtilegra, fjölbreyttra og árangursríkra verkefna í samstarfi við metnaðarfulla viðskiptavini. Og þegar ég tala um okkur, þá á ég við öll fyrirtækin undir okkar hatti sem starfa hér í húsi við auglýsingagerð, birtingar, stafræna markaðssetningu, uppbyggingu vefverslana, almannatengsl og samfélagsmiðla. Það sem skiptir okkur mestu máli er að sjá góðan árangur af vinnunni okkar og það tökum við með inn í nýtt ár.
Utanaðkomandi áhrif geta vissulega komið okkur úr jafnvægi. Heimsmálin eru flókin, óvissan í vestri er mikil og traust virðist víða á undanhaldi í alþjóðlegu samstarfi. Því stjórnum við ekki, en þurfum að sjálfsögðu að vera vakandi fyrir því hvernig þessar sveiflur hafa áhrif á okkar markað og starfsemi til lengri tíma.

Svo er eitt af stóru verkefnunum í okkar starfi: Gervigreindin. Við þurfum ekki lengur að spyrja hvort hún muni hafa áhrif, heldur hvernig við ætlum að tækla hana og það krefst fullrar athygli að fylgjast með þeim nýjungum sem skjóta upp kollinum, nánast daglega.

Þetta er allt í senn bæði spennandi og ógnvekjandi. Við sjáum reglulega dæmi um að alþjóðleg risafyrirtæki geri tilraunir sem enda með ósköpum, sem minnir okkur á mikilvægi þess að vanda til verka. Spurningin er hvernig við, á okkar litla landi, getum nýtt þessa tækni til að skapa forskot án þess að missa gæðin og mennsku snertinguna.
Þrátt fyrir áskoranir er alltaf gott að fara inn í nýtt ár með bjartsýni að leiðarljósi. Daginn er tekið að lengja og þótt skammdegið sé stundum strembið, þá get ég ekki beðið eftir handboltanum og strákunum okkar núna í janúar. Kjörið tækifæri fyrir þjóðina til að sameinast um og gleðjast. Áfram Ísland!

Það er vissulega ákveðið áfall fyrir okkur í auglýsingalandi að Ísland verði ekki með í Eurovision að þessu sinni. Kannski er það mögulega ágætis hvíld þar sem stemningin í kringum þessa Ofurskál okkar Íslendinga var orðin hálfsúr. En Heimsmeistarakeppnin í fótbolta er annað stórt sviðsljós og við ætlum að vera klár með öflugar herferðir þegar sólin er hæst á lofti. Gleðilegt ár!

Guðmundur Pálsson, framkvæmdastjóri