Ceedr er eitt þeirra fyrirtækja sem starfar undir okkar hatti hér í húsinu. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Norðurlöndunum með þá einingu en fyrirtækið er með starfsstöðvar í Noregi, Danmörku og Finnlandi, auk Íslands. Stafræn markaðssetning er flókin og margir krókar og kimar sem þarf að skoða. Á árinu varð Ceedr HubSpot Platinum Partner (frá því að vera Gold Partner). 16. janúar 2026 tekur sú breyting gildi en hún er staðfesting á því að Ceedr er í fremstu röð í innleiðingu á HubSpot kerfinu, sjálfvirknivæðingu herferða, ekki einungis á Íslandi heldur einnig á Norðurlöndunum.
Stafrænn vöxtur á sér, sem kunnugt er, engin landamæri og með öflugar starfsstöðvar á Norðurlöndunum getum við aðstoðað íslensk fyrirtæki við að ná til norrænna viðskiptavina með markvissri stefnumótun og tæknilausnum. Fínstilling söluferla eða keyrsla gagnadrifinna „inbound“ herferða getur skipt sköpum fyrir íslensk fyrirtæki á fyrirtækjamarkaði (B2B), innanlands sem utan. Markmið Ceedr er ávallt að grípa stafræn tækifæri og breyta þeim í mælanlegan árangur með skapandi hætti.


