Saga European Search Awards verðlaunanna nær aftur til 2012 og er elsta keppnin í þessum geira. Um leið eru þau eftirsóttustu stafrænu markaðsverðlaunin enda er samkeppnin þar hörðust.
Við sendum inn í þessa keppni í fyrsta sinn árið 2014, þegar hún var haldin hér í Reykjavík í tengslum við RIMC ráðstefnu. Það ár hrepptum við okkar fyrstu European Search Awards verðlaun. Í ár fékk Ceedr heilar 12 tilnefningar. Þær tilnefningar eru sem fyrr staðfesting á því að við séum að gera réttu hlutina, að aðferðafræðin sé í takt við tíðarandann og nýjustu tækni hverju sinni. Ceedr starfar bæði á Íslandi og á Norðurlöndum og tilnefningarnar 12 eru fyrir verkefni hér heima, í Danmörku, Svíþjóð og í Finnlandi.
Úrslitakvöld European Search Awards verður haldið í Krakow í Póllandi 8. maí nk. en evrópskar borgir skiptast á um að halda lokahátíð keppninnar í evrópskum borgum.


