heromynd 1200x630
28/01/2025

E-VENT

Morgunfundur um þjónustu á vefnum

Stendur íslensk verslun og þjónusta á tímamótum? Hefur þjónustan versnað? Erum við samkeppnishæf við önnur lönd?

Þessum spurningum, ásamt fleirum, verður svarað á öðrum morgunfundi E-Vent fundaraðarinnar í Kaaber-húsinu, þriðjudaginn 4. febrúar kl. 9.30 til 11.

Þar ætlum við að kynna niðurstöður könnunar sem gerð var á þjónustuupplifun á Íslandi 2024 og ræða við gesti um stöðu þjónustu á Íslandi með tækni, mannleg gildi og gervigreind í huga.

Fyrirlesarar:
Thelma Wilson, Kári Þór Rúnarsson, Brynjólfur Sævarsson og Einar Thor.

Kaffi og léttar veitingar

Viðburðurinn er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig.