Fyrir 18 mánuðum síðan hófum við, ásamt vinum okkar hjá Scandinavian Design Group, það verkefni að skapa nýja ásýnd fyrir Þjóðkirkju Íslands. Leiðarljósið í allri stefnumótun var setningin „Ég trúi á minn hátt,“ sterk áminning um að kristin gildi eru í raun sammannleg gildi sem við lifum flest eftir, óháð trú.
Afraksturinn er nýtt merki, heildstætt útlit og nýr upplýsinga- og þjónustuvefur. Á vefsíðunni getur almenningur raðað saman sínum eigin gildum í persónulegan kross og kynningarherferðin sýnir þjóðþekkta einstaklinga segja frá sínum gildum.
Verkefnið var leitt af Pipar\TBWA og SDG en naut liðsinnis úrvals fagaðila. Nánar hér.
Og þá mega jólin koma.


