Ekki vera hökkuð
09/08/2021

Ekki vera hökkuð

Fimmtudaginn 5. ágúst 2021 hélt Hallfríður Jóhannsdóttir vefnámskeið um öryggi á samfélagsmiðlum fyrir einstaklinga og fyrirtæki með yfirskriftinni: Ekki vera hökkuð.

Fyrirlesari á vefnámskeiðinu er Hallfríður Jóhannsdóttir en hún starfar sem samfélagsmiðlasérfræðingur hjá PiparTBWA, PiparEngine og Ghostlamp í Osló. Einnig hefur hún um margra ára skeið haldið haldið námskeið um notkun og öryggi í notkun samfélagsmiðla á alþjóðlegum vettvangi.

Hún er sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu frá Digital Marketing Institute, er viðurkennd sem Facebook Blueprint Professional Buyer og með viðurkenningu frá Content Marketing Norway sem samfélagsmiðlasérfræðingur og sérfræðingur í efnismarkaðssetningu.

Hallfríður er hin fullkomna blanda af stefnumótanda og sérfræðingi, með mikinn áhuga á samfélagsmiðlum og stafrænum samskiptum. Hún er vinsæll fyrirlesari og ráðgjafi á sviði stefnumótunar og efnisöflunar á öllum samfélagsmiðlarásum, með víðtæka reynslu af markaðssetningu á samfélagsmiðlum.

Hún hefur þjálfað og haldið námskeið fyrir um 100 stjórnendur og fyrirtæki á borð við Gjensidige, Taxback International, Maskingrossisternes Forening, Bergen Kommune, Herøya Industripark, Trygg Trafikk, Norges Forskningsråd, Nelfo, NHO, UiO, Ass Bryggeri, Stavanger Kommune, Scandic Hotels, Thon Hotels, Storebrand, Hansa-Borg Bryggerier, BUFDIR, Kristiansand Municipality, Necon Energi, NEAK, NMBU, Conscia Norway, TU Jobb og fleiri.

Hún heldur námskeið á íslensku, ensku og norsku, bæði fyrir félög og opinbera aðila, en hennar styrkleiki liggur einkum í því hvernig B2B fyrirtæki geta starfað með skilvirkari hætti, aukið sýnileika sinn og náð árangri á samfélagsmiðlum, einkum LinkedIn.

Þú getur horft á upptöku af “Ekki vera hökkuð” vefnámskeiðinu en þar er leitast við að svara spurningum á borð við:

  • Hvernig hakka netþrjótar sig inn á samfélagsmiðla og hvernig er hægt að koma í veg fyrir það?
  • Hvað getur þú gert til að tryggja öryggi þinna samfélagsmiðlareikninga?