goa paskaegg 1920
12/03/2026

Góu páskaeggin í nýjum umbúðum

Heil fjölskylda af glæsilegum Góu súkkulaðieggjum spókar sig nú í verslunum í splunkunýjum dressum. Það fer vel um eggin í nýju umbúðunum enda eru þær loftþéttar og geymast því enn betur, en hver vill geyma páskaegg? Hver poki er heilmerktur með tegundareinkennum sem auðveldar súkkulaðiunnendum að finna rétta eggið – á svona líka fínu verði.

Svo má kannski ljóstra því upp að von er á óvæntum en bragðgóðum nýjungum inn í páskaeggjafjölskylduna á næstu dögum. Fylgist með!