auglysingar
12/02/2026

Gulir bílar á götunum – Ofurskál í botn

Hafið þið séð gulan bíl í umferðinni nýlega? Eflaust jánka því margir, stundum er eins og þeir séu alls staðar. Gulir bílar eru nefnilega eins og vel heppnaðar auglýsingar, þeir skera sig úr fjöldanum og vekja eftirtekt.

Nokkrar slíkar birtust á Ofurskálinni sl. mánudagskvöld og voru á köflum kærkomið hlé frá leiknum sjálfum, sem var óttalegt hnoð. Bandaríkjamenn leggja mikið í auglýsingarnar og það er mál manna hér á stofunni að sjaldan hafi jafn margar stórstjörnur leikið í þeim.

Aðrir fastir liðir á borð við talandi dýr og misgóða pabbabrandara voru að sjálfsögðu á sínum stað.
Þær auglýsingar sem tókst hvað best að fanga athygli tíðindamanns fréttabréfsins, voru:
·   Squarespace með Emmu Stone
·   Sápuópera ELF með Melissu McCarthy
·   Margföld afköst RAMP með Brian Baumgartner
·   Bosch gaurinn með Guy Fiery
·   Hárballaða Manscaped

Þessi listi er auðvitað ekki faglegur. Hann byggist á smekk eins manns. En þrátt fyrir svefnhöfga reynir hann að leggja mat á skemmtanagildið, því skemmtun er oftar en ekki guli bíllinn á götum Auglýsingalands. Hvað fólki þykir skemmtilegt er síðan önnur umræða. Þar skiptir öllu að þekkja markhópinn. En það er engin tilviljun að tilraunir til skemmtunar séu alltaf áberandi í Ofurskálarauglýsingum.

Það tekst síðan misvel, og þar komum við aftur að markhópunum. Dæmi um slíkt er Dunkin’ Donuts auglýsingin sem skartaði m.a. Jennifer Aniston og Ben Affleck. Þar var veðjað á vandræðalegheitagrín og aulahroll (e. cringe). Sömuleiðis tók Ben Stiller vandræðalegheitin út yfir allan þjófabálk fyrir Instacart. Tíðindamaður var lítt hrifinn, þótt vandræðalegur sé. Þó ber að nefna að Dunkin’ Donuts hafa náð á nokkra lista yfir bestu Ofurskálarauglýsingar ársins. Markhópurinn og allt það.

Umfjöllun sem þessi telst varla fullkláruð nema minnst sé á Budweiser. Í ár er tilefnið ærið: 150 ára afmæli fyrirtækisins. Sögð var vináttusaga folalds og fálkaunga sem vaxa saman úr grasi þar til fálkinn tekur flugið og fákurinn á sprett. Free Bird ómar undir. Amerískt fyrir allan peninginn. Tíðindamaður var hrifinn, en hvetur lesendur að sjálfsögðu til að horfa og mynda sér skoðun. Það er nefnilega markhópurinn sem tekur best eftir gulu bílunum.