selma
04/06/2026

HM, SÍA og RIMC

Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu er fram undan, gott HM-sumar. Lengi stóðu vonir til að Íslendingar tækju þátt en sú von brást þegar við töpuðum gegn Úkraínu í umspili. Við getum kannski huggað okkur við að Ítalir komust ekki heldur áfram og hafa þeir þó unnið HM fjórum sinnum.

Þessi keppni er einn stærsti sjónvarpsviðburður í heimi og það er ekki bara heiður liða/þjóða í húfi heldur gífurlegir fjárhagslegir hagsmunir um allan heim og áhrifin smitast í hagkerfin á ótal stöðum. Það vill oft gleymast þegar þusað er um þessar „bévaðar íþróttir í sjónvarpinu alltaf hreint“. Sama gildir um sjónvarpsviðburði eins og Eurovision, allavega hérlendis. Það er hætt við að mörg íslensk fyrirtæki hafi misst spón úr aski í vor, verslanir sem selja sjónvörp til dæmis, og líklega hefur verið minna um Eurovision-partí með tilheyrandi grilleríi og öðrum veitingum, sem auðvitað þarf að selja og segja frá (les: auglýsa) í öllum mögulegum miðlum. Hollendingar voru ekki með á HM 2018 og Heineken fann illilega fyrir því í sölutölum sínum það árið, þó hitabylgja í landinu hafi vegið þar talsvert upp á móti. Við höldum áfram að fylgjast með uppáhalds knattspyrnuliðunum á HM í sumar þó að „við“ séum ekki að keppa sjálf. Það eitt hefur áhrif á hagkerfið og skapar framlegð og vinnu fyrir sjónvarps- og snakksala, já og auglýsingagerðarfólk.

Aðalfundur SÍA (Samband íslenskra auglýsingastofa) var haldinn á dögunum. Þar urðu formannsskipti þegar Selma Rut Þorsteinsdóttir var kosin formaður. Markmið SÍA er meðal annars fagmennska í markaðsmálum og auglýsingagerð sem og fagleg þekking á fyrirtækjarekstri. Þar erum við svo sannarlega pollróleg með hana Selmu okkar í brúnni sem er auglýsingamanneskja af ástríðu.

RIMC, eða Reykjavik Internet Marketing Conference, er ómissandi viðburður fyrir öll þau sem vinna við eða hafa áhuga á stafrænni markaðssetningu og sýnileika á netinu. RIMC 2026 verður haldin í Smárabíói 17. september kl. 13.00 og er forsala miða hafin á Tix.is. Hægt er að tryggja sér miða á forsöluverði til og með 17. ágúst.
Að þessu sinni beinir RIMC sjónum sínum að því hvernig hægt er að ná forskoti á tímum framkvæmandi gervigreindar (e. Agentic AI), en markaðsumhverfið gengur nú í gegnum sína stærstu umbreytingu til þessa. Kynntu þér allt um RIMC 2026 á rimc.is.