Hreppamjolk2 1500x750 1
13/01/2022

Hreppamjólk

Merki, umbúðir og vefur

Hreppamjólk er framleidd á Fjölskyldubúinu Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Bændurnir þar eru stórhuga og framsæknir og vildu gjarna prófa að gefa neytendum kost á því að kaupa ferska, ófitusprengda gæðamjólk beint frá býli. Við fengum það ánægjulega verkefni að hanna vörumerki, umbúðir og vef fyrir Fjölskyldubúið. Fyrir áhugasama þá er Hreppamjólk seld í Krónunni í Lindum.