motum frantidina
18/12/2025

Mótum framtíðina saman

Í kjarabaráttu Kennarasambands Íslands í fyrra aðstoðuðum við þau við almannatengsl og samfélagsmiðla ásamt því að framleiða auglýsingaherferð. Áherslan þá var á tölulegar staðreyndir varðandi hátt hlutfall ófaglærðra við kennslu og mikla starfsmannaveltu sem því fylgir – og mikilvægi þess að tryggja börnunum okkar fagmennsku og stöðugleika.

Í nýrri herferð KÍ er sleginn nýr og bjartsýnn tónn, enda mikill hugur í félagsfólki að byggja upp sterkara menntakerfi með fagmennsku og stöðugleika að leiðarljósi. Góð menntun er lykillinn að tækifærum framtíðar og það er á ábyrgð okkar allra, kennara, foreldra, ríkis og sveitarfélaga.

Kvikmyndaðar auglýsingar voru framleiddar af Atlavík, Helgi Jóhannsson og Hörður Sveinsson leikstýrðu, en Hörður sá einnig um ljósmyndun.