March Forward er yfirskrift alþjóðlegrar herferðar og vitundarvakningar UN Women. Kastljósinu er beint að bakslagi í jafnréttismálum á heimsvísu á síðustu árum – og við öll hvött til að leyfa hlutunum ekki að færast aftur á bak, en halda ótrauð áfram. UN Women á Íslandi leiðir herferðina, fyrir hönd landsnefnda UN Women um allan heim.
Áhrifavaldar í fjölmörgum löndum slógu upptakt að herferðinni samhliða fréttaumfjöllun, áður en kvikmynduð auglýsing sem við gerðum í samstarfi við Atlavík og Allan Sigurðsson leikstjóra var frumsýnd í höfuðstöðvum Sameinuðu Þjóðanna í New York og í Kauphöll Íslands á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna, þar sem Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women Ísland, hringdi bjöllunni við opnun markaða.
Ljósmyndir úr herferðinni hafa birst víða um heim og framleitt var ýmiss konar markaðsefni, s.s. varningur, vefborðar, prentefni, samfélagsmiðlaefni, sniðmát og leiðbeiningar fyrir aðlögun að mismunandi mörkuðum.
Við höfum notið dyggrar aðstoðar kollega okkar á TBWA\Helsinki við almannatengsl í erlendum miðlum, svo ekki sé minnst á framlag óteljandi sjálfboðaliða og þátttakenda í fjölmörgum löndum. Herferðin heldur áfram út 2025 og þó áherslurnar kunni að vera mismunandi milli landa, þá er innihaldið alltaf hið sama. Við sýnum bakslagið og köllum á breytingar: Nú förum við áfram.


