¡Hola! Colas Ísland hefur sent frá sér Ónýtuvegahandbókina, sem inniheldur greinargóða lýsingu á ástandi vegakerfisins, ásamt tillögum að úrbótum og vegafréttaspá. Handbókinni fylgir að sjálfsögðu ýtarlegt holukort af Íslandi, sem vegfarendur geta notað til að leggja lykkju á leið sína á ferð um landið.
Útgáfu Ónýtuvegahandbókarinnar var fagnað með sérstöku útgáfuhófi, fimmtudaginn 2. október, í verslun Pennans Eymundsson í Austurstræti. Nicolas holuáhugamaður var á svæðinu, las kafla úr bókinni (upphátt) og áritaði eintök. Auk þess var handbókin send á alla sitjandi þingmenn þjóðarinnar og til forsvarsfólks allra sveitarfélaga landsins.


