verdlaun 1
04/06/2026

PHNX-gull og Evrópsk leitarvélabestun

Pipar\TBWA var tilnefnt til fimm PHNX Awards verðlauna fyrir Colas herferðina ¡Hola!. Herferðin hreppti að lokum tvö gull, í PR flokki sem og fyrir menningarlæsi (Cultural Insights) og tvö silfur, fyrir áhrifavaldaherferðir (Creator & Influencer Campaigns) og í flokki sjónvarps- og vefauglýsinga (Online Films).

Vöxtur í netsölu og sölutækifærum

Stafræna auglýsingastofan okkar, Ceedr, vann til þrennra verðlauna á European Search Awards í Portó núna 20. maí. Ceedr fékk Gull í tveimur flokkum, fyrir árangursríkustu notkun gagna í greiddri leit fyrir Hertz Iceland (Best Use of Data PPC) og fyrir bestu staðbundnu herferð fyrir vefverslun Hagkaups (Best Local Campaign). Og silfur fékk Ceedr síðan fyrir verkefni sem unnið var fyrir norsku leikfangakeðjuna Sprell sem snerist um bestu notkun leitarlausna í B2B (Best Use of Search B2B). Þessi þrenn verðlaun má ekki síst þakka aðferðafræði Ceedr í notkun gagna við ákvarðanatöku og strategíska hugsun í uppbyggingu herferðanna sem hefur skilað viðskiptavinunum vexti í netsölu og sölutækifærum.