Sjúkást er forvarnarátak á vegum Stígamóta um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Markmið átaksins er að efla þekkingu og umræðu meðal ungmenna og hvetja þau til að greina og ræða muninn á heilbrigðum, óheilbrigðum og ofbeldisfullum samböndum. Pipar\TBWA hefur fylgt verkefninu frá upphafi og er þetta 8. árið í röð sem við komum að hugmyndavinnu og uppsetningu átaksins.
Í ár byggist herferðin upp í kringum spilið Sjúkflögg sem hvetur þau sem spila til að spá í eigin hegðun, sem og hegðun þeirra sem þau eiga í samskiptum við. Spilið gengur út á að lesa upp fullyrðingarnar á spilunum og flagga ýmist grænu eða rauðu flaggi eftir því hvort fullyrðingin er í lagi eða ekki. Spilið fæst á sjukast.is
Við þökkum Stígamótum kærlega fyrir samstarfið sem og fólkinu sem tók þátt í að kynna spilið en þau gáfu öll vinnu sína. Takk!


